Fréttir

Elísabet Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar

Stjórn Handverks og hönnunar hefur ráðið Elísabetu Jónsdóttur í starf framkvæmdastjóra sjálfseignarstofnunarinnar. Elísabet tekur við starfinu af Gunnhildi Eddu Guðmundsdóttur.

Glóandi Jökull – alþjóðleg glerlistarhátíð á Hellissandi

Glóandi Jökull – Glowing Glacier Glass Festival verður sett 24. júní 2026 á Hellissandi og stendur til 19. júlí. Á þessum tíma breytist byggðarkjarninn undir Snæfellsjökli í lifandi miðstöð glerlistar þar sem sýningar, glerblástur, vinnustofur, fyrirlestrar og fjölskylduviðburðir fara fram á mörgum stöðum í þorpinu

Bergmál eftir Rögnu Fróða í Hafnarborg

Laugardaginn 7. mars kl. 15 opnar sýningin Bergmál eftir Rögnu Fróða, í sýningarstjórn Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur. Á sýningunni býður listakonan áhorfendum inn í töfrandi heim lita, forma og áferða þar sem textíll gegnir lykilhlutverki. Öll byggja verkin á teikningum sem verða til í flæði og beinu samtali milli handar og undirmeðvitundar, þar sem Ragna flakkar milli frjálsrar teikningar, stafrænnar úrvinnslu og handverks.

ERINDI: Handverk úr skógi og garði - hentugar spítur til handverks

Í tengslum við sýningu Jóns Guðmundssonar SKAPAÐ ÚR SKÓGINUM er blásið til fræðandi erindis laugardaginn 7. febrúar kl 14 í sýningarrými Handverks og hönnunar Eiðistorgi 15 (við hliðin á Vínbúðinni)

ATH. Lokað í dag föstudag

Vegna sérstakra aðstæðna er sýningin Skapað úr skóginum lokuð í dag, föstudag en opnar á morgun kl 13-16.

SKAPAÐ ÚR SKÓGUM - sýningaropnun laugardaginn 25. janúar kl 14-17

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar SKAPAÐ ÚR SKÓGUM laugardaginn 24. janúar kl 14-17 Jón Guðmundsson, plöntulífeðlisfræðingur og trérennismiður sýnir fjölbreytta rennda muni á sýningarsal Handverks og hönnunar á Eiðistorgi. Fallegir viðarbútar eru nýttir þar sem fegurð viðarins er aðalatriðið og hún látin koma fram í hlutnum. Ýtt er undir einkennin með því að nota olíur sem flæða vel og laða fram viðaræðar og viðarsveppi. Litir svo sem mýrarauði, málm og plöntulitir eru notaðir til að ýkja einkenni.

ÞAÐ HÚMAR AÐ - Sýning Textílfélagsins í rými Handverks og hönnunar á Eiðistorgi

Velkomin á opnun samsýningar Textílfélagsins laugardaginn 8. nóvember kl. 14:00-17:00. Léttar veitingar verða í boði Sýningin er samstarfsverkefni Textílfélagsins og Handverks og hönnunar. Þátttakendur eru 39 meðlimir Textílfélagsins. Sýningin verður opin fram til 29.nóvember. Pallborðsumræður verða haldnar 18.nóvember þar sem rætt verður um birtingarmynd handverks í hönnun og listum, nánar auglýst síðar.

Vitrum - Spjall með Johanna Seeleman og Anders Vange í H,A,K,K Gallery

30. september síðasliðin var dásamlegur viðburður fyrir sýninguna VITRUM í H,A,K,K Gallery. Það kom Edda framkvæmdastjóri sér fyrir sem spyrill í skemmtilegu samtali við Johanna Seeleman og Anders Vagne um verkin, samstarfið og heimspekilega sýn sköpunar í dag. 

VITRUM - Sýning Gallery HAKK

HAKK er þverfaglegur vettvangur hönnunar sem er ætlað að skapa frjóan jarðveg fyrir handverk og smáframleiðslu. HAKK heldur nokkrar sýningar á ári þar sem hver og ein sýning hefur skýra stefnu, áherslu á efni, aðferð og hugmyndafræði Afgangsgler fær nýtt líf með töfrum hönnuða, handverksmenn og iðnfyrirtæki taka höndum saman um betri og snjallari nýtingu hráefnis á sýningunni Vitrum.

NORDIC TEXTILE TAKEOVER

NORDIC TEXTILE TAKEOVER 13.09.24 – 14.09.24 Scandinavia House 58 Park Avenue New York, NY 10016 United States Scandinavia House, í samstarfi við New York Textile Month, kynnir með ánægju aðra útgáfu af NORDIC TEXTILE TAKEOVER, sýningu, dagskrá og vinnusmiðjur sem varpa ljósi á samtímatextíl frá Norðurlöndum. Í sýningarsal Scandinavia House verður haldin sýning ásamt listamannaspjöllum, leiðsögn sýningarstjóra, móttöku og verklegum vinnusmiðjum. Helgardagskráin mun einnig sýna verk nýútskrifaðra textíllistnema frá Textilhögskolan í Borås NORDIC TEXTILE TAKEOVER er norrænt samstarfsverkefni á sviði textíls, samstýrt af Ragna Froda (ÍSL/US), framkvæmdastjóra New York Textile Month, og Emily Stoddart (CA), verkefnastjóra sýninga og samfélagsdagskrár hjá Scandinavia House í New York.